Ég hef lengi verið að pæla, eða reyndar var mér bent á það að næstum allar Harry Potter bækurnar, byrja á því sama:
Hann vaknar kófsveittur við einhvern draum.
Draumurinn er þá venjulega einhver martröð, sem erfitt stundum er að skilja, því að stundum skilur maður ekkert hvað er að gerast í bókunum. Stundum þá gæti hann (þegs vegna) verið á Spáni og næstu mínútuna verið á Ítalíu, en ég er ekki að neita því að þetta eru spennandi bækur og mjög skemmtilegar. Svo verða þær líka hryllilegri eftir því hver lengur dregur í bókunum og meira spennandi! :)