Ný bók komin í (að mér finnst) bestu fantasíuseríunni.
Þessi er styttri en þær fyrri, tæplega 700 bls. en hún er það góð að ég hefði óskað mér þess að hún endaði aldrei. Robert Jordan er snillingur og hefur samið þessa seríu sem er með svo þéttu plotti að maður hefur ekki minnsta grun um hvernig serían geti endað. Hver bók í seríunni gerist á mörgum stöðum í einu og aðalpersónurnar standa allar í eigin baráttu fyrir sjálfum sér, ástvinum, gegn innrásum og gegn the Dark One.
Mæli hiklaust með.