Stelpur í stuði er einasta bókin sem ég fékk í jólagjöf sem er kraftaverk, þar sem ég fæ aldrei bækur í jólagjöf!
Stelpur í stuði er ein frábærasta bók sem ég hef nokkurn tímann lesið ásamt bókinni stelpur í stressi.
Bækurnar eru þrjár í bókasyrpunni og þær heita: Stelpur í strákaleit (sem ég hef ekki lesið), Stelpur í stressi (sem var mjög góð), Stelpur í stuði (sem er ein æðislegasta bók sem ég hef lesið).
Svo er það spurning er von um aðra bók í bókasyrpunni eftir Jacqueline Wilson eða var Stelpur í stuði síðasta bókin?
Ég þarf nauðsynlega að fá að vita þetta og ég vona að einhver geti hjálpað mér :)

Kveðja
Gulla Jökuls