Ný íslensk kennslubók í förðun Förðun - þín stund inniheldur alla helstu grunntækni í förðun fyrir konur á öllum aldri, alveg frá þeim yngstu til þeirra elstu. Allar viljum við líta sem best út við þau margbreytilegu tilefni sem lífið hefur upp á að bjóða.

Í bókinni er meðal annars kennd 3ja og 6 mínútna dagförðun og ýmiss konar kvöld- og tískuförðun sem sýnd er með skemmtilegum ljósmyndum, sumar skref fyrir skref. Fyrir vikið verður ýmislegt sem hefur vaxið konum í augum, eins og skyggingar og smoky leikur einn.

Bókin er hnitmiðuð og einföld í notkun og nú er komið að þér að eiga þína eigin stund, njóta hennar og vera ánægðari með sjálfa þig á eftir.