Ítalski rithöfundurinn Mario Puzo hefur skrifað einar bestu bækur sem ég hef lesið. Vafalaust eru bestu bækur hans serían um guðföðurinn sem kom út fyrir löngu síðan. Aðrar mjög frægar bækur eftir hann eru Sikileyingurinn (The Sicilian) og Síðasti Doninn (The Last Don). Hann leggur mikla áherslu á sterka persónusköpun sem sýnir í öllum bókunum sínum sem ég hef lesið. Af þeim má nefna: Don Domenico Clericuzio, Pippi De Lena, Don Vito Corloene, Don Michael Corleone, Salvatore Guillano, Don Croce og ég gæti haldið áfram að telja lengi. Það sem hann skrifar oftast um eru mafíustörf. Hann lýsir einnig öllu sem gerist vel í smáatriðum og stundum flakkar hann mikið með tíma. Ég mæli með bókum eftir Mario Puzo og þá sérstaklega Guðföður bókunum!