Ég var að frétta það að út er komin ný bók um Artemis Fowl eftir Eoin Colfer, Artemis Fowl-blekkingin. Ég hélt alltaf að þær yrðu bara þrjár en nú bættist ný bók við.

Nýjasta bókin með Artemis Fowl fjallar aftur um gömlu aðalpersónurnar Holly Short, Eiki kentárinn, Snykur dvergurinn og auðvitað Artemis Fowl. Ópal Kóbó er aftur komin á kreik og ætlar að tortíma jörðinni. Fólkið (álfarnir) þurfa núna aftur á hjálp Artemisar að halda, eins og í seinustu bókinni. Vandamálið er bara það að Fólkið hafði þurrkað út alla þekkingu Artemis um Fólkið í seinustu bók.

Holly er ákærð fyrir morð,
Snykur Grafan situr enn í fangelsi og
Eikur veit alltaf allt best.

Ég hef sjálf ekki lesið bókina heldur fann þessar upplýsingar á netinu. Ég vona bara að hún verði jafn góð og seinustu bækurnar. Ég hlakka líka til að lesa hvernig Butler (þjónn Artemisar) gengur eftir að hafa dáið og lifnað við aftur í seinustu bók.

Ef að einhver hefur lesið bókina og sér eitthvað vitlaust hjá mér endilega leiðréttið mig bara :P