Komið öll sæl!

Næstkomandi fimmtudagskvöld, þann 8. júlí, er ætlunin að halda smá bókmenntahitting á Café Rósenberg. Þar munu m.a. Rithringur.is og Ljóð.is ásamt fleirum kynna sig og sína.

Boðið verður upp á opin míkrófon og geta gestir og gangandi lesið upp úr eigin verkum…ja, eða farið með gamanmál.

Ætlunin er að skapa lifandi og skemmtilegar umræður um íslenskar bókmenntir og stöðu þeirra.

Þátttakendur eru:
Nyhil
Verðandi
Benedikt Lafleur
Bestikk
Rithringur.is
Ljóð.is
Alli á 11
Malbik

Dagskráin hefst um kl. 20 og stendur fram eftir kvöldi. Aðgangur er ókeypis og ALLIR VELKOMNIR!!!