Ég hef tekið eftir því að Harry Potter lesendur viti ekki nóg um aðalkrimmann Voldemort, þannig að mér datt í hug að skrifa svolítið um hann.

Voldemort heitir í raun Tom Marvolo Riddle í höfuðið á föður sínum, Tom eldri var muggi. Móðir Voldemorts var norn en það kemur aldrei fram hvað hún hét, Salazar Slitherin var langa-einhvað-afi hennar. Hún dó rétt eftir fæðingu Voldemorts, þar af leiðandi var Voldemort sendur á munaðarleysingjahæli. Rétt er að geta að Tom eldri ætlaði að giftast móður hans en hún sagði honum að hún væri norn þannig að hann fleigði henni á dyr og neitaði að Voldemort væri sonur sinn. Þessar ástæður eru aðas ástæðurnar fyrir hatri Voldemorts á föður sínum og öllum muggum.

Voldemort fór til Hogwarts að læra galdra, það er aldrei sagt hvaða ár þetta var en til viðmiðunar var Dumbledore en þá kennari við Hogwarts. Ég held að á fimmta ári hafi Voldemort oppnaði leyniklefann og hleypt út Basiliskunni. Voldemort sviðsetti föngun Hagrids þegar hann geimdi Aragog í kistli. Hagrid var rekinn úr skólanum. Þetta atvik á að hafa verið fimmtíu árum áður en önnur bókin gerist, J.R. Rowling segir aldrei á hvaða ári bækurnar gerast.

Eftir að Voldemort útskrifast frá Hogwarts drap Voldemort föður sinn og fjölskyldu hans. Rowling segir aldrei hvenar Voldemort byrjar að safna til sín áhangendum en hann stofnar einskonar félag sem kallar sig Dráparana skilst mér á íslensku en Death eaters á ensku, náttúrulega er hann höfuð flokksins.

Nú er komið að því þegar Voldemort reynir að drepa Harry Potter, ég held að allir viti hvernig það fór en ég ætla samt að segja frá því.
Eftir að Peter Pettigrew segir Voldemort hvar Potter hjónin búa fer Voldemort til þeirra um kvöld til þess að drepa þau. Fyrst drepur hann James Potter og svo fer hann á eftir Lilly Potter, hún fórnar sér fyrir Harry þannig veitir hún honum galdravörn þannig að galdurinn endurspeglast á Voldemort. Voldemort er þá tekinn úr líkama sínum og verður einhverskonar andi.

Flestir sem hafa lesið bækurnar vita framhaldið og ég ætla ekki að skrifa meir.