Ég var mjög hissa þegar mér mistókst að finna grein um þessa frábæru bók, en ef hún fór framhjá mér bið ég bara höfundinn innilegrar afsökunar! Vona að þú getir fyrirgefið mér!

Allaveganna, þessi frábæra bók sem ber titilinn “Of mice and men” er eftir manninn John Steinbeck. Hún er held ég skyldulesning í mjög mörgum framhaldsskólum og ég var einmitt að ljúka við að lesa hana í skólanum.

Í stuttu máli fjallar þessi bók um tvo menn, Lennie og George, sem eru svona vinnumenn sem ráða sig í vinnu á búgörðum við ýmsa erfiðisvinnu. Lennie er þroskahefur, eða allaveganna ekkert alltof “bright” og George er í rauninni að passa upp á hann því Lennie á engann að lengur. En af einhverjum ástæðum voru þeir reknir frá þeim búgarði sem þeir unnu síðast á og bókin byrjar þar sem þeir eru á leiðinni á næsta búgarð í vinnu.

Bókin er ekki mjög löng og er á auðlesinni ensku svo hún ætti að vera nánast hverjum sem er aðgengileg. Það er líka örugglega búið að þýða hana á íslensku. En hún er skrifuð sérstaklega, þannig að hún heldur manni við efnið allan tímann, og mér finnst húmorinn í henni óborganlegur, þ.e. ef maður fattar hann, sem ekki næstum allir í bekknum mínum gerðu! ;)

Sem sagt, skyldulesning fyrir alla sem hafa gaman af bókmenntum, sama hvernig bókmenntum! :)

****/****
"