Morgan Kane Morgan Kane bækurnar eru um 80 talsins með þesum tveggja lengda bókum. Þessar vasabækur voru gefnar út á milli áranna 1966 -1976 og voru einkar vinsælar. Faðir minn átti glæsilegt safn af þessum bókmenntum og eftirlét mér þær fyrir nokkrum árum og ég las þetta ekkert þá og þetta fór inní skáp en svo í einni tiltektinni fann maður þessar bækur og byrjaði að glugga í þær og viti menn, ég hellti í mig um 60 bókum á innan við mánuði. Ég las allt að 2 bækur á dag. En núna um bækurnar.

Morgan Kane er kúreki í hinu gamla og villta vestri. Móðir hans og faðir voru frá Írlandi og hann fæddist einn rigningardag í rústum vagnalestar á Santa Fé slóðinni 1855 .Hann hann gerði margt skrautlegt og hans blóði drifna slóð er lýst, ævintýri eftir ævintýri.

Höfundur bókanna kallar sig Lois Masterson en heitir réttu nafni Kjell Hallbing og er norskur. Þannig að það má segja að Morgan Kane sé norskur kúreki. Notast var við sögulegar staðreyndir í bókunum og allt smellur saman.
Whyatt Earp einn frægasti kúreki sem uppi hefur verið kemur í bókunum sem og Clanton bræður, Dalton bræður(sem að eru einnig í Lukku-Láka) og Doc Holliday.