Heyriði mig vantar eiginlega smá aðstoð við þetta val mitt =) Ég hef alltaf verið bara í Windows PC, en svo núna langar mig að fá mér fartölvu, og hef verið að skoða Mac og lýst mér mjög vel á þær tölvur.
Mig langar svona að fá að heyra, ef það hafa verið aðrir hérna í Windows og fært sig síðan yfir í Mac og hvernig þeim finnst það? Er Mac-inn að gera sig? Mig langar slatta í svona tölvu, langar bara að vita það frá þeim sem eiga svona tölvur, svo maður sé nú ekki bara að fara að kaupa sér svona útaf einhverjum auglisýngum. Takk takk..
What Time Is It? Game Time!