Ég á síma með bluetooth, Samsung J-200. Ég hef sent lög úr tölvunni minni (MacBook) í símann en ég get ekki sent úr símanum í tölvuna. Þegar ég reyni kemur upp “sending failed” í símanum. Ég get hinsvegar sent úr símanum í aðra síma, en ekki í aðrar MacBook (hef því miður ekki prófað með aðrar tölvur). Ég veit ekkert hvað er að, en ég giska á að það séu einhverjar stillingar.

Einhver sem hefur hugmynd um hvað þetta gæti verið?