ég hef verið að pæla mikið í því hvort ég ætti að uppfæra tölvuna mína í Mac. Ég er nefnilega að fara að kaupa nýja tölvu en er ekki viss hvort ég ætti að kaupa Macintosh eða Windows PC.

Ég er búinn að vera með PC frá byrjun og hef aldrei séð Mac nema nokkrar myndir á netinu. Allt sem ég haf séð með Mac er miklu flottara í útliti en Win. En samt finnst mér eins og meirihlutinn af leikjum og dánlódum eru fyrir Windows. Ef ég skipti yfir í mac, get ég þá notað sama ADSL mótald og í PC?
Kveðja, Danni