Ég á iBook g4 vél, keypta um jólin 2005 í Bandaríkjunum, hún hefur hingað til virkað fullkomlega, aldrei bilað eða neitt.

Ég notaði hana á gamlársdag með góðu móti, eins og venjulega, og slekk á henni rétt eftir skaup, síðan þegar ég ætla að kveikja á henni aftur um miðjan nýjársdag að þá gerist ekki nokkur skapaður hlutur, ekkert. Hún kveikir ekki á sér.

Og já, hún er ekki batterís eða rafmagnslaus.

Kannast eitthver við svona, eða hefur einhver hugmynd um hvað þetta gæti verið, ég er búinn að hafa samband við verkstæði Apple og fer með hana á næstu dögum en vildi samt athuga hvort einhver hefði hugmynd um hvað vandamálið gæti verið. Er þetta virkilega tímavillt Y2K vandamál eitthvað, hehe.