http://www.vendetta-online.com/h/welcome.html

Fyrir fólk (eins og mig) sem hefur verið slefandi yfir Eve-Online, en týmir ekki að kaupa sér Windows vél til þess eins að keyra hann þá er þetta lausnin!

Hann er enn á frumstigi, en er algerlega spilanlegur og fólk getur skráð sig og spilað frítt í takmarkaðan tíma. Svo eru það 10 dollarar á mánuði (nærri helmingur EVE gjaldsins).

Hvað System Requirements varðar þá er ég að keyra hann á eins og hálfs árs PowerBook G4 fartölvu - 1,5 GHz, 1,25 GB ram, 64 MB skjákort (ATI Radeon 9700 Pro). Hann virkar mjög fínt í hæstu upplausn svo lengi sem ég er ekkert að fikta mikið við stillingarnar (leikurinn datt niður í 8 ramma per mínútu þegar ég prufaði að hækka texture detailið og setja á preset fyrir 256MB skjákort… varð bara að prufa hehe).

En uppgefin lágmarks requirements:

MacOS X 10.2.8 or better (10.3.5 or better recommended)
1ghz G3/G4
384MB of RAM
3D Hardware Accelerator - Fully OpenGL compatible 32MB videocard with Hardware Transformation & Lighting (T&L).
Keyboard/Mouse and CDROM
200MB of harddrive space
56k internet connectivity

Eins og áður sagði þá er leikurinn á frumstigi og hefur enn ekkert verið auglýstur af ráði þannig að það eru ekki margir inni hverju sinni sem stendur og því tilvalið að vera með þeim fyrstu að byrja. (í augnablikinu eru 38 manns inni og geimurinn er hlægilega stór!)