sæl öll sömul. ég er að athuga hvort einhver hér hafi fundið leið til þess að spila WMV3 video kóðun á macca? ég er með nokkur video sem segjast ekki geta spilast á þeim forsendum að þessi afkóðari sé ekki til í tölvunni. veit einhver hvar þetta er hægt að nálgast? ég er búinn að leita ítarlega á google eftir wmv3 decoder en ekkert hefur komið upp bitastætt hjá mér. ég veit ekki hvort ég sé svona blindur á þetta eða hvort þetta sé almennt ekki til. en ef einhver er með info um þetta þá væri það vel þegið.