Ég keypti þessa tölvu þegar hún kom út, fyrir 5 árum eða eitthvað þannig og þá var hún ný. Ég hef aldrei skipt um DVD drif í henni. Samt kemur ekkert þegar ég set inn brenndan DVD disk. Ég heyri vélina byrja að snúa disknum en svo stoppar hún allt í einu. Ég hef prófað að setja inn kvikmynd sem ég keypti á DVD og það virkar fínt en ekki brenndi diskurinn.