Ég hef átt iBook 500mhz (2 usb) í nokkurn tíma. Ágætis tölva í
alla staði en það er nokkrir hlutir sem angra mig.

Glæra plastið sem umlykur tölvuna er orðin svo frekar rispað
en ég hef samt farið frekar vel með hana.

Það eru komnir blettir á skjáinn sem nást ekki af með vatni,
líklega af því að lyklaborðið þrýstist að skjánum þegar hún er
lokuð (einhver ráð?).

Raftengillinn er afar óhandhægur, ég sé ekki tilganginn með
því að hafa sér snúru úr honum í kló. Annars er nýr raftengill
kominn sem fylgir með PB 550mhz sem var að koma á
markað. Ég vona að að það verði hægt að kaupa hann sér í
framtíðinni.