Það kom mér nokkuð að óvörum þegar ég sá að það var komið áhugamál um þennan mann, Sasha Baron, high five fyrir því. Hann er mjög fyndinn, því fær enginn neitað en það sem ég vil vita er afhverju það er búið til áhugamál um þessar persónur sem eru inn í dag en verða kannski ekki eftir mánuð, en síðan er ekki búið til áhugamál um t.d. James Bond sem hefur verið í gangi í tugi ára og mun verða í gangi áfram og þar af leiðandi helst líf í áhugamálinu?
Þetta skil ég ekki væri til í að fá svör.