Gleymt lykilorð
Nýskráning
Sagnfræði

Sagnfræði

4.256 eru með Sagnfræði sem áhugamál
17.292 stig
10. vinsælasta áhugamálið (hækkar)
706 greinar
844 þræðir
44 tilkynningar
3 pistlar
894 myndir
389 kannanir
27.395 álit
Meira

Ofurhugar

DutyCalls DutyCalls 1.156 stig
STAVKA STAVKA 1.086 stig
ritter ritter 576 stig
fabilius fabilius 454 stig
br75 br75 266 stig
TryggviIslandus TryggviIslandus 216 stig
Rembrandt Rembrandt 206 stig

Stjórnendur

Ku Klux Klan (3 álit)

Ku Klux Klan
Fremur áhugaverð samtök byrjuðu á saklausan hátt og auðkenndust af hvítum rúmfötum, keilulaga hatti og krossi með blóðdropa. Þeir gengu um og misþyrmdu, pyntuðu og/eða drápu aðallega blökkumenn þó þeir hafi líka ráðist gegn gyðingum og samkynhneigðum.

Svo er það þeirra skemmtilega nafn sem stundum þarf skemmtilega margar tilraunir til að segja rétt. Nafnið kemur af gríska orðinu kuklos og merkir hringur. Þeir breyttu því í kuklux sem síðan varð Ku Klux Klan.

Stórmenni þýska ríkisins (0 álit)

Stórmenni þýska ríkisins
Þessari skemmtilegu mynd stal ég af lemurinn.is. 


P.S. : Fari svo einhverjir aðrir að senda inn myndir og annað efni, annars hætti ég að nenna þessu :(

Bismarck (og fleira) (2 álit)

Bismarck (og fleira)
Afsakið, önnur orrustuskipamynd frá mér, að þessu sinni glæsilegt tölvumódel af Bismarck. Og fleiri myndir bæði af því og nokkrum öðrum "döllum" á síðunni.
 

USS Iowa (1 álit)

USS Iowa
Hér má sjá bandaríska orrustuskipið USS Iowa, fýrandi úr öllum sínum kannónum á æfingu árið 1984.
 
Iowa var reyndar orðið ansi gamalt og lúið þá. Það var smíðað í upphafi Seinni heimsstyrjaldar, þegar allir helstu sjóhernaðar-spekingar heims héldu ennþá að orrustuskip væru aðal málið.
 
Það kom hinsvegar fljótlega í ljós, sérstaklega á Kyrrahafinu í bardögum milli Japana og Bandaríkjamanna, að þessir drekar máttu sín lítils á móti radar-útbúnum flugmóðurskipum. Orrustuskip sukku hvert af öðru eftir árásir flugvéla. (Á Miðjarðarhafi sökktu Þjóðverjar meira að segja einu með flugskeyti, eins og bara rétt til að boða nýja tíma).
 
Engu að síður ákvað Kaninn að halda enn um sinn í þessi síðustu fjögur orrustuskip sín. Þau voru eftir alltsaman hin fullkomnustu og dýrustu í heimi, og ef hægt var að halda flugvélum fjarri, komu þau enn í ágætar þarfir við önnur verk eins og t.d. Kóreu, Víetnam, Persaflóann. Höfðu (eins og myndin sýnir) ofsalegt firepower. 
 
Að sjálfsöðgu voru skipin alltaf "uppfærð" með nýjustu græjum. En við lok Kalda stríðsins, var loks orðið of "blóðugt" að halda þessum gömlu drekum í þjónustu lengur og uppfæra þá meir. 
 

Megali hugmyndin (3 álit)

Megali hugmyndin Þegar Grikkir öðluðust sjálfstæði frá Ottonmanveldinu í gríska frelsisstríðinu á fjórða áratug 19. aldar náði hið nýja gríska ríkið ekki nema yfir Pelopsskagann og rétt yfir svæði norðan hans og bjó meirihluti Grikkja enn innan Ottomanríkisins. Megali hugmyndin var draumur gríska ríkisins um að ná yfir öll svæði byggð Grikkjum, þ.m.t. Konstantínópel og vesturströnd Litlu Asíu. Þessi stefna átti eftir að einkenna utanríkispólitík Grikkja alla 19. öldina, þar sem margir sigrar voru unnir, en hún leið undir lok þegar Grikkir töpuðu óvænt Grísk-Tyrkneska stríðinu árið 1922. Í kjölfarið var skrifað undir samning á milli Gríska ríkisins og hins nýja Tyrklands Atatürks um gagnkvæma nauðungarflutninga Grikkja og Tyrkja milli ríkjanna. Fjölmargir Grikkir höfðu þá verið hraktir/flúið frá Anatólíu í kjölfar stríðsátaka á svæðinu í byrjun aldarinnar en að endingu var um 1,5 milljón Grikkir fluttir til Grikklands.

Megali hugmyndin um Stór-Grikkland og samstaða þeirra í sjálfstæðisbaráttunni byggðu á grískri þjóðernishyggju sem sótti í hinn býsanska arf, ekki þann forn gríska, eins og svo margir Vestur-Evrópumenn töldu. Sjálfstæði Grikklands skyldi verða, amk hugmyndafræðileg, endurreisn Býsanska ríkisins, þar sem Konstantínópel, loks grísk og kristin aftur, yrði höfuðborg ríkisins.

Trivia (2 álit)

Trivia Jæja, getur einhver sagt mér eitthvað um þennan mann - Hvað hann hét, hvaða embætti hann gegndi, etc :?

Mynd af handahófi (5 álit)

Mynd af handahófi Úr Íslandssögunni

OSAMA (25 álit)

OSAMA Það lækkar sífellt standardinn á þessu “yfirkrossi” hjá TIME: Árið 1945 þurftu menn að vera einræðisherrar næst stærsta og tæknivæddasta iðnveldi heimsins, og hafa jafnframt leitt til heimsstyrjadar og breytt mannkynssögunni á allan hátt um aldur og ævi.


2003 þurftu menn bara að hafa klúðrað illilega sínum málum sem arabískir einræðisherrar.

Nú til dags þurfa menn aðeins að hafa verið ótrúlega “heppnir” með stór hryðjuverk, og tekist að fela sig í helli í áratug.


Árið 2057 verða örugglega litlir strákar sem reyna að sprengja upp póstkassa “strikaðir út” á forsíðu TIME.

Smá trivia (7 álit)

Smá trivia Hér sjást þeir kommaráðar, Fidel Castro Kúbuleiðtogi og Nikita Kruschev Sovétleiðtogi, á góðri stundu í ferðalagi árið 1960.

Ekki kannski mjög merkilegt í sjálfu sér, en merkilegra er þó hvar myndin er tekin. Veit það einhver?

Trivia (13 álit)

Trivia Hvaða sögulega atburði lýsir þessi mynd?