Hún opnaði augun… var öll sveitt en reyndi að hreyfa sig ekki of mikið, vildi ekki vekja hann. Hún virti hann fyrir sér þar sem hann lá á móti henni og hélt utanum hana. Það var einhvernvegin svo mikill friður yfir honum, sælusvipurinn ennþá fastur á smettinu þrátt fyrir að hann væri fyrir löngu sofnaður. Af hverju gat hún ekki sofið líka? Þetta var búið að vera yndislegt kvöld og hún ætti að vera orðin nokkuð þreytt… en hún gat ekki sofnað, var búin að vera andvaka í tvo klukkutíma sem voru...