Sælir Hugarar. Ég er að skoða bíl núna sem er með Chevy 350 vél og 4ra hólfa blöndung. Nú veit ég nánast ekkert um Ameríkubíla/vélar svo mig langar aðeins að fræðast um þessa vél. Það sem mér dettur fyrst í hug að spurja er kraftur/tog, möguleika á tjúningum, er vit í að fá innspýtingu á þetta, hvaða verkstæði sörvisera svona græjur. Öll önnur komment á hana vel þegin.