Ætli þetta hafi verið Tojjota Kórólla?

Úr fréttablaðinu…

Keyrði um á röngum bíl
LÖGREGLA
Bíleigandi hafði samband við lögregluna á Akureyri í
síðustu viku og tilkynnti að bíl sínum hefði verið stolið. Lögreglan svipaðist um og fann bílinn fljótt, þar sem honum var
ekið um götur bæjarins. Ökumaður sagðist hafa fengið bílinn
lánaðan.
Hann sagði að illa hafi gengið opna bílinn og prófaði hann því
næsta bíl við hliðina, sem var af sömu tegund og gengu lyklarnir
greiðlega bæði í hurð og kveikilás.
Hann hélt þetta vera réttan bíl og ók honum af stað í góðri
trú um að vera á réttum bíl.


Amk fékk ég stundum hræðslukast á þeim tíma þegar ég átti '96
Kóróllu og þurfti að finna hann á stórum bílastæðum >:-)