Já, en krabbamein var ekki viðurkennt sem sjúkdómur bara upp úr þurru, og það ætti ekki heldur að gera með alkahólisma. Það er enginn að tala um að viðurkenna áfengissýki sem sjúkdóm upp úr þurru. Ég sé í raun ekki hvað krabbamein kemur málinu við. Ég ætti kannski að kalla letina í mér sjúkdóm, við gætum kannski, mögulega, líklega, einhvern tímann fundið læknisfræðilega útskýringu á leti minni. Eða kannski er hún bara í genunum. En mér finnst samt engin ástæða að tala um letina sem sjúkdóm...