Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

tumix
tumix Notandi frá fornöld 406 stig

LA Lakers (14 álit)

í Körfubolti fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Þeir hafa ekki byrja svona illa í mörg ár en helsta ástæða þess er að Shaquille O'neal er ekki búinn að vera með en hann er að jafna sig eftir aðgerð sem gerð var á honum í sumar. Þeir eru búnir að spila 8 leiki vinna einungis 2 þeirra og 6 töp. Í fyrsta leiknum gegn San Antonio töpuðu þeir honum 87-82 þar sem Kobe Bryant gerði 27 stig og tók 10 fráköst svo kom Stanislav Medvedenko með 11 stig og 5 fráköst en hjá Spurs var Malik Rose með 16 stig og 11 fráköst. Í öðrum leiknum gegn Portland...

Fyrsta tapið hjá Arsenal (30 álit)

í Knattspyrna fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Everton tók á móti Arsenal í dag á Goddison Park en Arsenal mátti þola sitt fyrsta tap í 31 leik.Leikurinn byrjaði frábærlega fyrir Arsenal þegar varnarmönnum Everton gekk illa að að koma boltanum út úr teig en þá kom Frederik Ljungberg Arsenal yfir eftir einungis 7 mínutu leik en í miðjum hálfleiknum náði Tomas Radzinski að jafna leikinn. Í seinni hálfleiknum fengu bæði lið þokkaleg færi til að skora sigurmarkið og meðal annar átti Wiltord skot í stöngina en það var ekki fyrr en á...

Eintracht Frankfurt (4 álit)

í Manager leikir fyrir 21 árum, 7 mánuðum
ÉG var kominn með smá leið á því að vera alltaf stjóri á Englandi þannig að ég ákvað að prófa eitthvað nýtt og gerðist stjóri hjá Eintracht Frankfurt í annari deild í Þýskalandi fyrir tímabilið fékk ég einungis Uwe Rösler á free transfer og síðan keypti ég Nolberto Solano frá Newcastle á 2.5 milljónir eftir jól leikmenn keyptir Uwm Rösler free transfer Nolberto Solano frá Newcastle á 2.5m eftir jólin samtals 2.5m leikmenn seldir Sven Schmitt til RW Essen á 400k Albert Streit til RW Essen á...

Man Utd komið í gang (27 álit)

í Knattspyrna fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Loksins loksnis Man Utd er komið í gang eftir fimm sigur leiki í röð núna seinast á móti Everton en þá unnu þeir 3-0 en fyrsta markið kom ekki fyrr en á 86 mínutu leiksins en þá skoraði Paul Scholes og síðan aftur á 90 mín.Svo á lokasekúndum fékk Man Utd vítaspyrnu sem Ruud van Nistelrooy skoraði úr. En flest allir utd menn voru orðnir annsi stressaðir. Liðinu gengur mjög vel í meistaradeildini en þeir þurfa að saxa á forskot arsenal sem gengur mjög vel núna bæði í deild og meistradeild.En...

Ætla að sekta Sprewell (13 álit)

í Körfubolti fyrir 21 árum, 7 mánuðum
New York Knicks ætla að sekta Latrell Sprewell um næstu 250 þúsund dali eða 22 milljónir íslenskra króna fyrir að láta þá ekki vita strax að hann hefði brotið á sér hægri hendina tveimur vikum áður en hann átti að mæta í æfingarbúðir hjá félaginu. Hann sagðist hafa dottið og meitt sig á snekkju sinn og hefði haldið að meiðslin væru ekki svona alvarleg en í New York Post var sagt að hann hefði brotið hendina í slagsmálum í snekkjuni En Sprewell fór í uppskurð í seinustu viku og verður frá í...

Fyrsta ferð vetrarins (11 álit)

í Körfubolti fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Ég fór með liði mínu Þór ak í æfingarbúðir á Laugar um helgina. Við áttum að mæta klukkan 8:30 á laugardagsmorgini við Hamar. Þaðan var ekið til Laugar á einkabílum,ferðin tók um 45 mín. Fyrsta æfingin byrjaði klukkan 10 en hún var frekar leiðinleg við fórum að æfa kerfi í 2 tíma fimm strákar saman í liði og æfa kerfin á hliðarkörfurnar.Síðan var þjálfarinn var eitthvað morgun fúll hann hundskammaði tvo stráka annan fyrir að vera með tyggjó og hinn fyrir að spyrja hvað klukkan væri vegna...

Tveir þórsarar farnir (9 álit)

í Körfubolti fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Óðinn Ásgeirsson er farinn til KR en hann var einn af bestu leikmönnum Þórs og hann á eflaust eftir að styrkja liðið heilmikið. Á seinast tímabili var óðinn einn af þremur íslendingum sem náðu tvöfaldir tvennu. Hann skoraði að meðaltali 17.4 stig og tók 10.5 fráköst. Hann var síðan með mjög góða skotnýtingu í tveggja stiga skotum eða 51.8%.Fólk vissi þetta nú að hann myndi fara eitthvað í burtu fyrst þór skráði sig úr úrvalsdeildini og fór niður í 2.deild. Svo er Einar Örn Aðalsteinsson...

Buffon til Man Utd (17 álit)

í Knattspyrna fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Ég las áðan á gras.is þeirri ágætu síðu að Man Utd væri undirbúa risatilboð í Gianluigi Buffon hjá Juventus upp á 32 milljóna punda. Þessi frétt birtist í hinu virta ítalska blaði Corriere Dello Sport.Sagt er að Juventus sé tilbúið að selja Buffon fyrir rétt verð.Juventus hafa aldrei verið hræddir við að selja sína bestu leimenn eins og með Zidan en hann er einn af bestu leimönnum heims. Man Utd markmennirnir þrír eru svo allveg nógu góðir mér finnst að Man Utd ætti frekar að kaupa einhvern...

Man Utd vann (7 álit)

í Knattspyrna fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Þetta er í fyrsta skipti í 37 ár sem Manchester United vinnur í þýskalandi en þeir unnu Bayer Leverkusen 2-1 í meistardeildini. Loksini hrökk Ruud van Nistelrooy en hann setti tvö mörk í fyrri hálfleik á 31,44 mín og þau voru ekki úr vítum. Leverkusen minnkaði muninn á 52 mín og þar var að verki Dimitar Berbatov og hann var síðan nálæt því að jafna metinn er hann skallaði í stöng en United slapp með skrekkinn. Ég er Man Utd aðdáandi og ég ætla svo að vona að liði sé komið í gang eftir þennan...

Verður Þór með? (5 álit)

í Körfubolti fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Mér brá heldur betur þegar ég fór inn á mbl.is.Þar stóð að framtíðin hjá Þór væri óljós eftir að Pétur Guðmundsson hætti sem þjálfari liðsins og framkvæmdastjóri körfuknattleiksdeildar. Í kvöld verður fundur hjá félaginu,þar verður tekin ákvörðun um hvaða leiðir skildu valdnar í framhaldinu. Þorgils Sævarsson formaður körfuknattleiksdeildarinnar sagði að um 50% líkur yrðu að Þór væri með lið í úrvaldsdeildini sem hefst 10.október. Ekki verður ráðinn þjálfari fyrr en að loknum fundi...

Bandaríkjamenn töpuðu þrem leikjum í röð á HM (4 álit)

í Körfubolti fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Bandríkjamenn töpuðu á móti Argentínumönnum 87-80 en þetta er fyrsti tapleikur Bandaríkjamanna síðan þeir máttu nota NBA leikmenn með landsliðinu en liðið hafði unnið 58 leiki í röð. Átta leikmenn Argentínu skorðu á bilinu 7 til 15 stig og þetta því mikill liðsheidarsigur hjá þeim. Góð vörn Argentínumanna hélt Bandaríkunum í 37.5% skotnýtingu. Paul Pierce var stigahæðstur í liði Bandaríkjanna með 22 stig en Andre Miller og Michael Finley skoruðu 14 stig hvor. Bandaríkjamenn mættu Júgóslövum...

Yugoslavia eru heimsmeistarar (4 álit)

í Körfubolti fyrir 21 árum, 8 mánuðum
eftir ótrúlegan sigur gegn Argentínumönnum 84-77 í framlengingu. Dejan Bodiroga hetja liðsins sem hafði aðeins gert 11 stig í 8 leikjum á mótinu skoraði nú 27 stig þar af 16 stig í fjórða leikhluta.Hann tók leikinn í sýnar hendur þegar Yugoslavia voru undir 74-66 en hann skoraði 9 stig á seinustu 2 mínutunum. Argentínumenn voru rosalegar slappir undir lok leiksins þeir misnotuðu seinust 12 skotin þar af öllum 9 skotunum í framlenginguni.Valde Divac misnotaði tvö vítaskot þegar 5.9 sekundur...

Hvað er að honum (9 álit)

í Kettir fyrir 21 árum, 9 mánuðum
Ég á fallegan 10 ára gamlan högna sem hefur alla tíð verið mér góður og rólegur útiköttur sem hefur veitt mjög mikið af fuglum. Seinasta sumar rétt eftir að skólinn er búinn þurtum við að selja bænum húsið okkar en við vorum ekki búinn að ákveða hvert við ætluðum að flytja þannig að við leigðum íbúð í blokk. Við vildum ekki loka köttinn inni blokk því hann yrði allveg brjálaður.Við bjuggum í tveggja hæða húsi og eigendurnir á neðri hæðini ætluðu að gefa honum að borða,hleypa honum inn og...
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok