Nokia-farsími loks með litaskjá Nokia 9210 frá Nokia er væntanlegur á markað. Finnski fjarskiptatækjaframleiðandinn Nokia hyggst á næstu dögum senda frá sér nýjan GSM-síma sem býr yfir mörgum eiginleikum lófatölva. Um er að ræða tegund sem nefnist 9210 og er næsta kynslóð á eftir 9110 sem kom á markað fyrir nokkrum árum. 9210, sem styður Symbian-stýrikerfið, býr yfir fjölmörgum nýjum eiginleikum. Hann er með litaskjá (4096 litum), hægt er að senda tölvupóst með símanum (Lotus Mobile Notes),...