Þeir sem þykjast trúa eru móðgaðir yfir þessari auglýsingu. Ég er trúlaus og ég er hrifinn af auglýsingunni. Það er allt í lagi að gera grin að trúnni.
Ef óvirkni er á þessu áhugamáli verðum við að spýta í lófana og skrifa og senda inn efni, svo framarlega sem það sé umsjónarmönnum þóknanlegt og þeir velji það sem við skrifum um.
Ég hef þá trú að landsliðsþjálfarinn hafi valið þá kylfinga sem hann taldi vera tilbúna og vel undirbúna fyrir þetta verkefni. Maggi Lár kemst fljótt inn í landsliðið á ný svo ekki örvænta vinur!
Leiðinlegt að hann skuli lenda í þessu drengurinn! En mig minnir þó að hann hafi ætlað sér að jafna kofann við jörðu og láta smíða fyrir sig nýtt hús. Er ekki komið tækifæri fyrir hann að byrja þá á því nýja?
Mér finnst þetta undarlegt Fróðleiksmoli! Þú bíður mér að grafa stríðsöxina niður eftir að þú ert búinn að segja að ég hafi verið með æsing og yfirgang. Sá sem vill grafa niður stríðsöxina á að gera það án þess að skjóta fyrst á mann og bjóða svo að grafa niður vopnin. Ég segi bara fyrir mig að ég tel að ég hafi ekki verið með neinn æsing eða yfirgang hér. Aðeins sagt mína skoðun og staðið við hana og orðað hana á þann hátt sem ég taldi vera best. Ég kann ekki annað en að segja mína skoðun...
Til hamingju með að setja þína fyrstu sögu inn á þetta áhugamál. Ég las söguna þína og hún er fersk. Passaðu þig á að fara yfir söguna þína og laga villur sem geta falið sig í henni. Flæði gott. Svo vil ég segja eitt: haltu áfram að skrifa. Með æfingunni gætir þú orðið flottur rithöfundur.
Ég læt því mínu spjalli við þig um þetta mál hér með lokið. Þetta kom fram í skilaboðum frá þér sem ég svaraði og svo svarar þú aftur!!!!!!!!!!! Mér hefði fundist að þarna hefðir þú átt að hætta. En eins og einn góður maður sagði: Ef þú vilt virðingu verður þú að vinna fyrir henni! Ef ég á að bera virðingu fyrir þér þá finnst mér að þú eigir að gera það sama.
Ég er ekki að æsa mig að ástæðulausu því það á aldrei að hefta þann sem er að skapa í sinni list. Mér finnst regla eitt gera það. Punktur! Það er gaman að vita til þess að þú hefur skoðanir Fróðleiksmoli og ég kann vel að meta það. Ég er líka að segja mína skoðun sem ég má gera, takk fyrir það Fróðleiksmoli. Eins og eitt gott skáld sagði: „skáld sem hefur ekki skoðanir hefur ekkert að segja lesendum sínum.” Fróðleiksmoli ég vil segja þér eitt að tvisvar bentir þú mér á að lesa svar þitt sem...
Það er mjög einfalt að gera gæsalappir og það Íslenskar. Annað er bara afsökun. Mér finnst þessi regla sem við erum að ræða um skökk því mér finnst hún geta átt þátt í því að hefta skáld að setja inn stutt ljóð sem eru mörg hver góð. Svo ætla ég að segja þér það Fróðleiksmoli svona til FRÓÐLEIKS Að ég hef lesið allar umræður hér og ég þarf ekki að lesa þær aftur og aftur. Ég er bara að tjá mína skoðun á málinu. Eða má það kannski ekki? Mér er sama þótt þessi regla verði við lýði en það kemur...
Ég las það svar áður en ég setti mitt álit inn. Svo finnst mér eitt fyrst það er verið að setja reglur um málfar og skáld yfirfari ljóð sín áður en þau eru send til birtingar þá finnst mér það skjóta skökku við þegar notaðar eru enskar gæsalappir til að notast við tilvitnanir. Er ekki best að nota þessar Íslensku? Mér finnst það og þeir sem setja inn enskar gæsalappir eru að mínu mati þeir sem ekki er umhugað um málfar sitt og eða jafnvel yfirfari ekki efnið sitt. Enskar gæsalappir eiga ekki...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..