Joe Dottino - menntaskóla ( high school..) íþróttamaður í æfingabúðum hjá Joe DeFranco, þarna að framkvæma bóndagöngu. http://www.defrancostraining.com
Kevin Garnett er án efa einn af bestu leikmönnum NBA deildarinnar núna, ef ekki sá besti. Hann átti enn einn stórleikinn í nótt, núna gegn Suns. Garnett var með 17 stig, 20 fráköst, 6 stoðsendingar og 5 varin skot.
Tyrone “Muggsy” Bogues minnsti leikmaður allra tíma í NBA í venjulegum leik, Bogues er 5-3 á hæð ( rétt um 160 cm ) og spilaði í 14 ár í NBA, númerið hans í háskóla ( Wake Forest ) hefur verið tekið frá, en það var númer 14. Hér sést hann dekka leikmann NY Allan Houston.
Annað kvöld þurfa Lakers að kljást við þennan mann og aðra í Minnesota Timberwolves…Garnett er búinn að vera í stuði á þessari leiktíð og er með 24,5 stig, 14 fráköst og 5,2 stoðsendingar að meðaltali á leik.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..