Újé! :P Ég var að koma heim frá alveg stórgóðum tónleikum á Gauk á Stöng. Þar voru að spila Kuai og Isidor. Þetta voru síðustu tónleikar Isidor í langan tíma því Orri, annar gítarleikarinn, er að flytja til Frakklands á morgunn. Er það að mínu mati mikill missir fyrir íslenskt tónlistarlíf að þessi sveit muni ekki vera starfandi næsta árið eða svo. En snúum okkur að tónleikunum… við mættum reyndar þarna á slaginu 10 en þá var ekki nokkur sála mætt á staðinn og því fengum við okkur hálftíma...