Get ekki sagt annað en að ég sé mjög sammála. Svo væri ánægjulegt ef fleiri dómaranámskeið yrðu haldin, jafnvel reglulega ef mögulegt væri. Einnig væri ef til vill sniðugt ef liðin myndu mæta á slík námskeið. Þá yrðu ef til vill betri samskipti milli dómara og leikmanna. Man eftir að hafa farið á slíkt námskeið með SR en þá var farið yfir allar nýjar reglur o.þ.h. Svo er þetta auðvitað allt spurning um peninga þegar allt kemur til alls.