Þegar Ernest Hemingway var spurður að því hvernig sagan ‘Hæðir eins og Hvítir fílar’ (Hills like White Elephants) hefði komið honum í hug, sagðist hann hafa hitt stúlku sem hann þekkti til og vissi að hafði farið í fóstureyðingu, og rabbað við hana um stund, þó ekki um fóstureyðingu. Á leiðinni heim varð þessi hugmynd síðan til, hann sleppti hádegisverði og eyddi öllu síðdeginu í það að skrifa. Þessi goðsögn um vinnubrögð rithöfunda er ansi langlíf og föst í huga þeirra sem eru...