Tekið beint af mbl.is: ,,Breska dagblaðið The Observer greinir frá því í dag að Bandaríkjamenn ætli að refsa Þjóðverjum fyrir að hafa leitt baráttuna gegn stríði í Írak. Þeir hóta að draga til baka alla bandaríska hermenn, sem staðsettir eru í Þýskalandi og binda enda á hernaðarsamvinnu þjóðanna. Ef af þessu verður munu Þjóðverjar verða af milljörðum evra. Í dag eru 42 þúsund bandarískir hermenn í Þýskalandi, auk fjölda skriðdreka og flugvéla. Donald Rumsfeld, varnarmálaráðherra...