Fólk sem bendir á aðrar framkvæmdir og spyr hvort maður sé á móti þeim, svo sem húsabyggingum og þvíumlíkt, er ekki að skilja um hvað þetta snýst. Einu sinni spurði stúlka ein mig hvort ég hafi verið á móti öllum virkjunum hingað til eins og því sé eitthvað saman að líkja. Uppistöðulón hefur aldrei verið reist á jökulsá sem þýðir að þessar framkvæmdir eru með öllu óafturkræfanlegar. Sú staðreynd gerir það að verkum að sambærilegar framkvæmdir yrðu aldrei leyfðar annars staðar í Evrópu eða...