Ég stunda seglbrettasiglingar hér heima. Þetta er snilldar sport og hentar ágætlega á Íslandi. Það er hægt að sigla allan ársins hring og margir góðir staðir til að velja úr, hvort sem menn vilja sigla á flötum sjó eða í brimi. Það er engin búð hérna heima sem selur græjur og notað byrjendadót er flest allt frá 80´s eða 90´s sem er bara gert til að erfiða fyrir byrjenda að ná tökum á þessu. Bretti og segl breyttust mikið í kringum 2003 og byrjendagræjur frá þeim tíma eru bæði auðveldari í...