Nei, gaurinn sem leikur Boagrius (Nathan Jones) er ekki sá sami og berst við hlið Achillesar seinna í myndinni. Það mun vera hetjan Ajax, en hann er leikinn af Tyler Mane. Ástæðan fyrir því að Nathan Jones er svona ofarlega á imdb.com er hvorki sú að hann sé aðalleikari eða markaðsbrella, heldur sú að nafnalistinn er í tímaröð, þ.e.a.s. þeir sem birtast fyrst í myndinni birtast fyrst á listanum. Annars var söguþráði myndarinnar mikið breytt frá þeim sögum og ljóðum sem goðsögnin er byggð á,...