Jæja þá er það orðið ljóst hvaða lið eru komin í 8 liða úrslit meistaradeildarinnar og komust öll 3 liðin úr ensku úrvalsdeildinni áfram. Man.Utd endaði í 2. sæti í A riðli með 12 stig sem reyndar var jafn mikið og Valencia var með en Valencia var ofar vegna innbyrðis viðureigna. Arsenal endaði í 2. sæti í C riðli með 8 stig, jafn mörg og Lyon en var ofar á innbyrðis viðureignum, en voru 5 stigum á eftir Bayern München sem virtist taka þennan riðil frekar létt. Leeds hins vegar stóð sig mjög...