Ég er 26 ára gamall. Ég var í tónlistarnámi í Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og lærði þar bæði á klassískan gítar sem og rafmagnsgítar. Var gítarleikari Spilabandsins Runólfs (hituðum upp fyrir og spiluðum með Jagúar) þar til ég fór út sem skiptinemi, þar nam ég latingítarleik í skóla þar. Eftir tilfærslur og atburði lífsins (giftist og skildi) stofnaði ég hljómsveit (Mi Gente) með kúbverja og íslenskri stelpu þar sem við spiluðum suður-ameríska tónlist (alls kyns) en vegna ágreinings þeirra á...