Sæll og blessaður ReyFranco! Ég las kenninguna þína og ætla að segja mitt álit á henni: Ég held, en er ekki viss um, að allir hlutir sendi frá sér ljós eins og þú segir í greinini þinni. Lítum t.d. á plánetur, plánetur senda í raunini ekki frá sér ljós, plánetur endurspegla ljósi, ég er nú enginn snillingur þegar kemur að ljósi og ætti því ekki að vera að tala eitthvað mikið um ljós áður en ég hef lesið mig til um það. Auk þess sjást plánetur ekki sem ljósdepill á himninum, svo ég ætla að...