Mig langaði bara rétt að deila með ykkur að það er kominn inn nýr vefur fyrir hörðustu sveitaballasukkarana, ravis. Ravis beinir sjónum sínum einkum að menntskælingum á Norðurlandi Vestra sem vilja sjá sig í misjöfnu ástandi (ég sagði þetta ekki!) svona hér og þar.. það verður eitthvað kjaftæði þarna en sjónum verður aðallega beint að því sem er að gerast á djamminu í Skagafirði, svona til að byrja með alla vega. Þarna verða pistlar, gagnrýni á tölvuleiki og jafnvel tónlist er fram líða stundir (no pros!) og kjaftæði um allt og ekki neitt!
Látið sjá ykkur ef þið hafið eitthvað með djamm og sveitaböll að gera!