Sem Orlando-manni líst mér bara ágætlega á þetta, Miller var aldrei að fara gera neitt fyrir Orlando, var fastur í þessum 15 stigum í leik með T-Mac með sér. Ég hef hins vegar enga trú á Hill og vonast til að þeir komist að samkomulagi við hann svo þeir geti notað salary-cap-ið hans til að semja við einhverja stórstjörnu í sumar (Kidd, Duncan, Payton?) En já, Orlando þurfti mann einsog Gooden og þessi Giricek virðist líkur Miller og ég er sáttur, ennþá.