David Toms gerði sé lítið fyrir og lagði Phil Mickelson, 4/2, í 3. umferð heimsmótsins í golfi sem fram fer á La Cosat vellinum í San Diego en um er að ræða holukeppni á vegum bandarísku- og evrópsku mótaraðarinnar. En Mickelson var ekki sá eini af efstu mönnum heimslistans sem féll úr leik í gær þar sem Vijay Singh tapað gegn hinum 51 árs gamla Jay Haas 3/2 og Tiger Woods pakkaði föggum sínum niður í gær eftir að hafa tapað 3/1 gegn Ástralímanninum Nick O'Hern, en Woods átti titil að verja...