Ef þið hafði ekki tekið eftir því þá búum við á frekar leiðinlegum stað í heimunum að því leiti að hér er myrkur og leiðindaveður stóran hluta af árinu. Vegna þess finnst mér bara allt í gúddi að lengja jólin svolítið með því byrja snemma t.d. með að skreyta eða hlusta á jólatónlist. Sæsti hluti hátíðar er að hlakka til. Ég er búin að skreyta allt og löngu búin að kaupa allar jólagjafirnar. Nú er nægur tími til að röllta um götur bæjarins í jólaljósunum, drekka kakó á kaffihúsum, fá í skóinn...