Já alltaf er gott að vera varkár en ég held það væri gott að taka mjög þunga beygju á tveggja vikna fresti (1 vika ef þú ert lengra kominn) og þá nota smith vélina eða leg extensions meðan maður er að hvíla sig frá hnébeygjunni.
Já, ég geri allar mínar æfingar í tækjum. Ástæðan fyrir því er að ferlið verður alltaf það sama og ég fæ meira út úr æfingunni. Svo tala ég ekki um að slysahætta minnkar um 50-60% ef æfing er gerð í tæki.
Ég er alveg sammála það getur verið mjög hættulegt að taka hnébeygjuna meira en einu sinni í viku. Hnémeiðsli hrjá oft íþróttamenn og eru lyftingarmenn í þeim hópi og ýta hnébeygjurnar undir meiðsli (sérstaklega þessar djúpu). Persónulega finnst mér best að taka þungar hnébeygjur á 2 vika fresti til að ná góðri hvíld og finnst mér þá gott að gera leg press vafinn.
Ertu að meina hvort boxa í boxpúða sé gott cardio? Mundi telja það já. Bætt við 26. desember 2008 - 17:41 Fer náttúrlega eftir því hversu mikið þú reynir á þig við það!
Sæll, þú þarft að redda þér þessu sjálfur. Ég mæli með að þú reynir að finna einhvern sem er tilbúinn að lána þér singlet Þú getur ekki keppt nema hafa þennan búnað en ef þú átt frjálsíþróttabúning (hlaupabuninginn) máttu einnig nota hann.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..