1) Í hvaða framhalds/menntaskóla ertu/ætlarðu/varstu? Ég er í Menntaskólanum á Akureyri 2) Stefnir þú á háskólanám? Ef já, hvar og hvað ætlarðu að nema? Eins og staðan er núna er háskóli eins langt frá mínum draumum og mögulega. En mig langar samt ekki að enda á kassa í bónus til frambúðar þannig Söngnám er alveg eitthvað sem ég gæti hugsað mér, þá kannski í Bandaríkjunum. 3) Hvað ætlarðu að verða? (Má vera opið svar, til dæmis: ,,eitthvað í viðskiptageiranum“ eða ,,reka eigið fyrirtæki”.)...