Það fór gríðarlega í mig þegar Darth Vader Frankensteinaðist einhvernveginn fram, stóða gleiður, baðaði út höndum og öskraði án efa lélgustu línu Star Wars seríunnar. “Nooooooooo”. Þó stellingin hafi verið fáránleg tel ég að það megi enn redda þessu á DVD útgáfunni, bara með að taka þetta: “Noooo!” öðruvísi upp, eða setja öskur í staðinn. Þó fann ég einn ljósann punkt í þessum ógeðslega ramma. Það var mjög flottur svipur á Palpatine (sem reyndar bar af öllum í þessari mynd). Það má þó aldrei...