Ég er sammála því að lyf eru oft talin töfralausn og eiga að leysa allan okkar vanda og þess vegna eru margir sem taka lyf við öllu. Hins vegar má ekki gleyma því að lyf geta gert mikið gagn. Hvort sem verið er að tala um verkjatöflur, “gleði”-pillur, önnur geðlyf, og yfir höfuð lyf almennt, þá er tilgangur þeirra flestra að láta fólki líða betur. Ég hef lengi vel þjáðst af mígreni og er því ein af þeim sem virðist taka verkjatöflur við minnsta tilefni. Mígreni sést nefnilega ekki utan á...