Eins og aðrir hafa sagt, prufaðu bassa, finndu einhvern sem þér finnst gott að spila á og sem þér finnst sánda vel. En smá ráðlegging þó varðandi magnara…. Það er þumalputta regla að bassamagnarar þurfa að vera 3-4x öflugari en gítarmagnarar. Ef gítarleikararnir eru með t.d. 100w magnara og spila nokkuð hátt, þá þarftu c.a. 300-400w bassamagnara. Það nefnilega tekur mikið meiri orku að pumpa út þessum lágu nótum.