Komið þið sæl. Langar mig eindregið að fjalla um þennan spennandi disk sem mjer áskotnaðist á dögunum er prófasturinn í Kambahreppi gaf mjer forláta grip þennan er Sjera Meyfróður andaðist nú um árið. Diskurinn inniheldur átta lög í vandaðri útsetningu Kammersveitar Dalvíkur. Kammersveit þessi hefur getið sjer góðan orðstír í Dalvík fyrir kröftugan flutning og góðan liðsanda. Hljóðfærin eru tvær lágfiðlur, þrjú selló, mörgæsarbein, bilað kirkjuorgel og óbó. Lögin eru sem hjer stendur: 1. Í...