Ég er búin að eiga HP LaserJet 4L laser prentara í 6 ár, keypti hann sínum tíma á tilboði á endalausum raðgreiðslum. Hef aldrei séð eftir því. Þrælgóður, kveikir á sér þegar tölvan sendir honum skjal, slekkur sjálfkrafa á sér eftir ákveðinn tíma að prentun lokinni. Hitar sig upp í heilar 5 sekúndur. Hefur einu sinni bilað, tannhjól brotnaði, ég skipti um stykkið sjálf. Tónerinn er dýr, kominn upp í ca. 7.000-8.000 kr. EN ég prenta a.m.k. 7.000-8.000 síður á hvern tóner! Það gerir 1 kr. á...