Í rauninni er ekkert asnalegt að banna hunda í fjölbýli. Systir mín á hund, reyndar lítinn hvolp og hún býr í fjölbýlishúsi og það eru tvær aðrar íbúðir þarna og þótt að þetta sé yndislegur hundur og allt það, þá myndi ég bara ekki bjóða fólki uppá þetta, allavega ekki það sem HANN gerir. Hann geltir reyndar ALDREI en skítur og mígur alltaf á stigaganginum. Kanski lagast þetta og honum verður kennt að gera sitt úti. Annars ætti bara hver blokk að hafa þessar reglur fyrir sig.